Hrönn Guðjónsdóttir
Hrönn er flutt í Hamraborg 20, 200 Kópavogi. Nánari upplýsingar á www.ungbarnanudd.is, með tölvupósti á hronn@ungbarnanudd.is eða í síma 699-1299.
Ég útskrifaðist sem Certified Massage Therapist frá Boulder College of Massage Therapy 25. 03. 2001. Er meðlimur í Félagi Íslenskra Heilsunuddara.
Heilsunudd
Ég blanda saman ýmsum nuddtegundum en hver tími er sérsniðin að þörfum viðkomandi. Engin tími er eins þar sem dagsform fólks er mismunandi. Yfirleitt kemur fólk með tiltekið vandamál sem þarf að leysa, og oft er talsverðum hluta tímans varið til þess. Einnig er afar mikilvægt að sá sem liggur á bekknum nái góðri slökun og hvíld. Margir lýsa nuddinu hjá mér sem mjúku en samt þéttu.
Meðgöngunudd
Líkami konunar breytist mikið á meðgöngunni. Líffæri færast til og þyngdaraukning verður. Líkamstaðan verður önnur sem veldur oft þreytu og verkjum. Nudd getur linað verki og dregið út spennu ásamt því að veita góða slökun. Þær konur sem hafa farið reglulega í nudd á meðgöngu vitna langflestar um það hversu nuddið hefur hjálpað þeim á meðgöngunni og í fæðingunni. Eins telja þær að nuddið hafi góð áhrif á barnið þeirra.
Ég býð upp á sérstakan meðgöngubekk sem gerir barnshafandi konum mögulegt að liggja á maganum. Bekkurinn er hannaður þannig að á honum er gat með sérstökum stuðningi fyrir maga konunnar.
Ungbarnanudd
Foreldrar læra að nudda barnið sitt á fjögurra vikna námskeiði. Við hittumst vikulega, klukkutíma í senn. Æskilegur aldur barns er 1 - 10 mánaða. Ungbarnanudd er yndisleg aðferð fyrir ykkur til að tengjast enn betur. Auk þess getur nuddið bætt svefn, hjálpað við að losa loft úr maga og dregið úr magakrömpum. Námskeiðin eru haldin í Laugardalslaug. Einnig get ég komið í heimhús á höfuðborgarsvæðinu sem og á landsbyggðinni ef nokkrir taka sig saman. Lífrænt ræktuð ungbarnanudd olia frá Villimey fylgir með ásamt kennslugögnum. www.ungbarnanudd.is

